Óútskýrð sár í munni (munnangur)

Óútskýrð sár í munni, sem við köllum almennt munnangur í daglegu tali, eru sársaukafull sár í munnslímhúð sem geta verið hvimleið og haft áhrif á daglegt líf, til dæmis við að borða, drekka eða tala. Hjá sumum koma þessi sár endurtekið, oft án þess að augljós orsök sé til staðar.

Algeng orsök munnangurs

Ýmsir þættir auka líkur á að fá síendurtekin munnangur og má þar nefna:

 

Streita

Streita er vel þekktur áhættuþáttur og getur haft áhrif á ónæmiskerfið og viðkvæmni slímhúðar í munni (1).

 

Blóðleysi og skortur á næringarefnum

Skortur á ákveðnum vítamínum og steinefnum tengist aukinni tíðni munnsára. Slíkur skortur getur valdið því að slímhúð í munni verður viðkvæmari og grær verr. Má þar helst nefna:

o   Fólinsýru (1,2)

o   B12-vítamíni (1,2)

o   Járn

o   Sink1

o   C-vítamín (3)

Meltingarfærasjúkdómar

Síendurtekin munnsár geta einnig tengst meltingarfærasjúkdómum, oft í tengslum við frásogsvandamál næringarefna, svo sem:

  • Crohn-sjúkdómi (1)

  • Sáraristilbólgu (1)

  • Glútenóþoli (1)

Lyf

Ýmis lyf geta stuðlað að myndun munnsára, meðal annars með því að valda munnþurrki eða hafa áhrif á frásog vítamína og steinefna.

Ef sár í munni gróa ekki innan 2–3 vikna, eða ef þau eru mjög sársaukafull eða koma endurtekið, er ávallt ráðlagt að leita ráðgjafar hjá lækni eða öðru heilbrigðisstarfsfólki til frekari mats.

 

Heimildir

1.     Plewa MC, Chatterjee K. Recurrent aphthous stomatitis. In: StatPearls [Internet]. Treasure Island (FL): StatPearls Publishing; 2023 Nov 13 [cited 2026 Jan 21]. Available from: https://www.ncbi.nlm.nih.gov/books/NBK431059/

2.     Kozlak ST, Walsh SJ, Lalla RV. Reduced dietary intake of vitamin B12 and folate in patients with recurrent aphthous stomatitis. J Oral Pathol Med. 2010;39(5):420–423. doi:10.1111/j.1600-0714.2009.00867.x.

3.     Rosa A, Cianconi G, De Angelis R, Pujia AM, Arcuri C. Hypovitaminosis and its association with recurrent aphthous stomatitis: a comprehensive review of clinical correlations and diagnostic considerations. Front Oral Health. 2025;6:1520067. doi:10.3389/froh.2025.1520067.

Previous
Previous

Áhrif trefja á heilsuna

Next
Next

Áhrif ketó mataræðisins á einstaklinga með vanvirkan skjaldkirtil